Ungt fólk og lýðheilsa

staðsetning

Skólabúðir UMFÍ, Reykjum Hrútafirði

tímasetning

Fri, September 18 - 15:00

verð

15.000

aldursbil

Rekkaskátar, Róverskátar

skráningafrestur

Sep 08 2026 00:00

Ungmennaráð UMFÍ stendur fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðheilsa dagana 18.–20. september 2026 í Skólabúðum UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði.


Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er:


Blómstrum. Styrkjumst. Tengjumst.


Ráðstefnan er ætluð ungu fólki á aldrinum 15–25 ára og verður áhersla lögð á andlega, líkamlega og félagslega heilsu, tengslamyndun, sjálfsmynd og heilbrigðan lífsstíl í heimi þar sem skjánotkun og áreiti hafa sífellt meiri áhrif á daglegt líf.


Meðal gesta ráðstefnunnar í ár eru Ólafur Stefánsson og Skúli Bragi Geirdal.


Í viðhengi má finna kynningarbréf með nánari upplýsingum um ráðstefnuna, þátttöku og skráningu.


Við værum afar þakklát ef þið gætuð kynnt ráðstefnuna fyrir ungu fólki innan ykkar starfs eða samfélags og hvatt áhugasöm til þátttöku.


Sjá allar upplýsingar um ráðstefnuna hér: https://www.umfi.is/vidburdir/ungt-folk-og-lydheilsa/